Bichot Saint Emilion 2006

Fyrir um tveimur áratugum eða svo var úrvalið af vínum mun takmarkaðra en það er í dag og listinn yfir mest seldu vínin var nokkuð stöðugur ár frá ári. Þegar frönsku vínin voru annars vegar voru Saint Emilion-vínin frá A. Bichot einhver þau vinsælustu og mest seldu ár eftir ár. Nú eru mun fleiri sem keppa um hituna en Bichot-vínin eru enn með ágæta stöðu á markaðnum.

Bichot er raunar ekki vínhús í Bordeaux heldur það sem Frakkar kalla négociant í Búrgund, þ.e. er vínhús sem á eignir víða eða kaupir vín víða að og selur undir sínu nafni.

Þetta Saint Emilion-vín frá Bichot er farið að sýna nokkuð þroskuð einkenni enda sjö ára gamalt. Ávöxturinn er farinn að víkja fyrir þroskaðri ilm og bragði, reykur, jjörð, lyng og múrsteinn í nefi, þurkkaður plómuávöxtur. Þurrt í munni, tannín orðin nokkuð mjúk,  Ágætis vín t.d. með ostum eða grilluðu kjöti án sósu.

2.797 krónur.

Deila.