Það er ekki algengt að sjá búrgundarvín á þriggja lítra kössum en hér er þó dæmi um það. Macon er svæðið syðst í Búrgund og þaðan koma Chardonnay-þrúgurnar sem hið ágæta vínhús Bouchard Pére notar í þetta vín.
Þægileg blanda af eplum og sítrus í nefi, lime og gul epli, í munni meðalfylling, ágætur ávöxtur, þroskuð gul epli, ágætur sýrustrúktúr, þægilega mjúk áferð.
8.999 krónur eða sem samsvarar 2250 krónum á 75 cl. flöskur. Góð kaup.