Engar áhyggjur – vínið er ekki að klárast…

Ný skýrsla um yfirvofandi vínskort í heiminum hefur vakið mikla athygli enda er það ekki skemmtileg tilhugsun að hugsanlega verði ómögulegt að kaupa sér flösku af rauðvíni og hvítvíni. En ekki hafa neinar áhyggjur, það eru engar líkur á því að svo verði.

Í skýrslunni, sem unnin er af bandaríska fjárfestingabankanum Morgan Stanley, er vissulega bent á athyglisverðar staðreyndir, svo sem að á síðasta ári hafi eftirspurn eftir víni verið hvorki meira né minna en 300 milljónum kössum umfram framboð. Aukin eftirspurn er ekki síst rakin til þess að kínverska millistéttin er farin að drekka í vín í auknum mæli og að Bandaríkjamenn hafa stóraukið neyslu sína á síðustu árum.

Þetta kann að vera rétt en það breytir ekki því að vín í heiminum er ekki að klárast. Nær væri að segja að við erum að fara út úr ástandi þar sem offramleiðsla hefur verið viðvarandi árum og áratugum saman er heimsmarkaðurinn að komast nær eðlilegu jafnvægi.

Auðvitað eru einhverjar þjóðir að neyta meira af víni en mestu skiptir þó að evrópskir framleiðendur hafa verið að draga stórlega úr framleiðslu sinni. Það hefur verið að gerast í suðurhluta álfunnar þar sem að vínekrur hafa verið rifnar upp og annað komið í staðinn. Af hverju? Jú vegna þess að það hefur ekki verið markaður yfir allt þetta vín. Það hefur verið framleitt í skjóli niðurgreiðslna og aldrei endað í vínglasi heldur í eimingarhúsum, edikframleiðslu eða hreinlega verið hellt niður.

Það er heldur hvergi neinn skort að sjá ef frá eru skilin nokkur af eftirsóttustu vínhúsum veraldar. Víða um heim eru ný víngerðarsvæði að líta dagsins ljós og meira að segja Kínverjar eru orðnir stórtækir vínræktendur. Sama má segja um lönd á borð við Brasilíu og jafnvel Indland.

Verð er ágætis vísbending á jafnvægi framboðs og eftirspurnar og verð á ódýrari víni hefur farið lækkandi. Vín er víða selt undir framleiðslukostnaði. Ef svo ótrúlega færi að eftirspurnin myndi halda áfram að aukast verulega þá myndi verð fara hækkandi. Þá drægi úr eftirspurninni og jafnfram myndu fleiri sjá sér hag í því að byrja að framleiða vín. Evrópa gæti hæglega stóraukið vínrækt ef markaður væri fyrir hendi.

Það er því enginn ástæða til að hafa áhyggjur af yfirvofandi vínskorti.

Steingrímur SIgurgeirsson hjá Vínótekinu var gestur Síðdegisútvarpsins á Rás 2 í dag og ræddi þar þessi mál. Hægt er að hlusta á viðtalið hér.

Deila.