Santero Moscato Fragola

Moscato Fragola frá ítalska freyðivínshúsinu Santero er létt og sæt blanda af Moscato-víni bragðbættu með jarðarberjum. Vínið hefur sæta angan af jarðarberjasultu og gúmmínammi, í munni sætt en hefur þó nægan ferskleika til að gera það ekki of væmið, freyðir nokkuð þægilega en er helst til of gervilegt í bragði. Ískalt gæti þetta eflaust orðið vinsæll saumaklúbbsdrykkur

1.099 krónur.

Deila.