El Circo Contorsionista Cabernet Sauvignon 2011

Cabernet Sauvignon er þriðja þrúgan sem er að finna í línu El Circo-vínanna sem komu í vínbúðirnar um síðustu mánaðamót. Þessi snilldargóðu spænsku vín koma frá héraðinu Carinena.

Kröftug og nokkuð krydduð angan, þarna er dökkur berjasafi, smá krækiber, lyng, mulinn pipar. Ávöxturinn í munni er þroskaður, þurr og áfram kryddaður, nokkuð tannískt. Vín sem er að spila í deild fyrir ofan sinn verðflokk.

1.699 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.