Agassac er fallegt Chateau eða vínhús á Haut-Médoc svæðinu í Bordeaux, flokkað sem Cru Bourgeois en þau vín eru oft með bestu kaupunum. Þau eru stór og mikil en ekki eins stór og mikil þegar kemur að verði og vín frá mörgum öðrum svæðum Médoc.
2007 árgangurinn er klassískur og fínn Bordeaux-árgangur. Dökkur, nokkuð djúpur litur, í nefi sólber, töluvert míneralískt, áberandi eik, reykur, vel uppbyggt, nokkuð tannískt, góð sýra í lokin sem gefur víninu ferskleika og fína endingu í munni. Má geyma í nokkur ár, annars mæli ég með umhellingu að minnsta kosti klukkustund áður en borið er fram. Vín með villibráð, nautakjöti og önd.
4.398 krónur. Mjög góð kaup.