St. Clair Sauvignon Blanc „Bubbles“

„Bubbles“ eða bólur er yndislegt freyðivín frá nýsjálenska vínhúsinu St. Clair. Það vekur strax athygli áður en flaskan er opnuð, í fyrsta lagi er þrúgan Sauvignon Blanc ekki algeng í freyðivínum og í öðru lagi er flöskunni ekki lokað með korktappa heldur sérhönnuðum plasttappa. Nýsjálendingar eru greinilega að yfirgefa korkin í öllum vínum sínum.

Vínið freyðir vel og fallega, þetta er óneitanlega Sauvignon Blanc, og það bara ansi karaktermikill. Hitabeltisávöxtur, melóna, sætur sítrus, sítrónubörkur og ástaraldin, all grösugt.

2.499 krónur. Vínið þarf að sérpanta – en er þess virði.

Deila.