Adobe Sauvignon Blanc 2013

Emiliana er einn stærsti framleiðandi lífrænt tæktaðra vína í heiminum en alls ræktar vínhúsið vínvið lífrænt á tæplega þúsund hektörum.

Þetta er snoturt og ferskt hvítvín frá Casablanca-dalnum norður af Santiago, hefur þessi dæmigerðu einkenni Sauvignon Blanc frá Chile, örlítið grösugt í nef, grænn aspasi með limeberki, þroskuðum ananas og ferskjum. Bjartur, sætur ávöxtur í munni ásamt ferskri og fínni sýru. Fínasta sumarvín.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.