Héraðið Friuli er í norðausturhorni Ítalíu þar sem landamæri Ítalíu, Slóveníu og Austurríki mætast. Þetta er eitt besta hvítvínssvæði landsins og rómað fyrir vín úr þrúgum á borð við Friulano, Sauvignon Blanc og Pinot Grigio. Friuli-vín hafa fengist hér en ekki verið mjög fyrirferðarmikil, því miður, líklega vegna þess að þau eru aðeins í dýrari kantinum, en þó ekki sé miðað við gæði.
Hér er hins vegar eitt létt og bara ansi hreint ódýrt Friuli-vín úr þrúgunni Pinot Grigio.
Mjög ljóst á lit, fersk, mild angan, gul epli, græn epli og smá perur, örlítið grösugt. Létt og leikandi með þægilegri sýru. Sumarlegt vín til að drekka vel kælt á pallinum.
1.899 krónur.