Aurelio Montes er einn þekktasti víngerðarmaður Suður-Ameríku. Vínin hans hafa einstakan stíl og jafnt ódýrari sem dýrari vín gefa yfirleitt mjög mikið fyrir peninginn, til dæmis þetta hvítvín úr Sauvignon Blanc.
Fölgrænt á lit, kröftugur suðrænn ávöxtur, limebörkur, lyche, þroskaður sætur greipávöxtur, grösugt, kryddað, fáfnisgras. Ungt, lifandi og ávaxtaríkt.
1.899 krónur. Einstaklega vel gert og flott vín fyrir verðið, sem gefur víninu hálfa viðbótarstjörnu.