Brookford Shiraz Cabernet Sauvignon 2013

Brookford Shiraz – Cabernet Sauvignon er ástralskt rauðvín en samt ekki alveg dæmigert ástralskt rauðvín. Það færist í aukana að vín séu sérsniðin að ákveðnum mörkuðum og í þessu tilviki er um að ræða vín sem hefur verið mótað að þeim breska, sem oft er ekki mjög ólíkur þeim íslenska hvað smekk varðar. Einu sinni voru áströlsku vínin líka með þeim ódýrari en svo ruku þau upp í verði, af ýmsum ástæðum. Hér er aftur komið ástralskt vín, á fínu verði og já bara alveg hreint frambærilegt, ekta „vín hússins“ eins og maður myndi vilja fá það á venjulegum stað.

Í nefinu þroskaður dökkur berjaávöxtur, sólber, kirsuber og smá plómur, örlítið kryddað með vanillu. Þægilegt og milt, ávaxtaríkt í munni, hófstilltara en mörg áströlsk vín, evrópskara. Einfalt, létt, ekki langt, en mjög þægilegt.

1.851 króna. Mjög góð kaup.

Deila.