Vidal Fleury Cotes-du-Rhone 2012

Vidal-Fleury er eitt af klassísku vínhúsunum í Ampuis, nyrst í Rhone-dalnum og er þekktast fyrir Cote Rotie og önnur norðurhlutavín. Einfaldari vín hússins eru yfirleitt með þeim betri í sínum flokki. Við heimsóttum Vidal-Fleury í fyrra og má lesa nánar um það hér.

Vínið er fallega dökkfjólublátt, angan af rauðum og svörtum berjum, kirsuberjum, nokkuð kryddað, örlítill reykur og örlítill pipar, í munni rennur lakkrís saman við ávöxtinn, vel uppbyggt, þétt tannín og góður strúktúr. Virkilega gott matarvín, t.d. með lambi eða nauti.

2.590 krónur. Frábær kaup.

Deila.