Þriðja fimmtudag nóvembermánaðar bíða margir spenntir ár hvert því er leyfilegt að opna fyrstu flöskurnar af Beaujolais Nouveau um allan heim og yfirleitt eru margir tappar komnir úr flöskunum nokkrum sekúndum á eftir miðnætti. Þeir fyrstu sem fá að njóta af nýju vínunum frá Beaujolais eru íbúar Fiji og Nýja Sjálands og um hálfum sólarhring síðar geta Evrópubúar farið að gæða sér á veigunum.
Það var fyrr á þessari öld sem Nouveau-hefðin fór að ryðja sér til rúms í Frakklandi og fyrst um sinn voru það aðallega gestir kaffihúsa í París er héldu upp á komu vínsins. Enn í dag er Frakkland höfuðvígi Nouveau-vínanna. ð
Hámarki náði Beaujolais- æðið á níunda áratug síðustu aldar er Concorde- þotur voru jafnvel notaðar til að koma víninu milli staða í tæka tíð. Upp úr 1990 fór hins vegar að draga úr sölunni og æsingurinn við að koma víninu í hús varð verulega minni. Ein af ástæðunum var sú að fjölmargir höfðu hoppað á þennan vagn og hafið framleiðslu á Noveau og almennt dró verulega úr gæðum vínsins. Nouveau fór jafnvel að hafa slæm áhrif á ímynd Beaujolais í heild og þeirra mörgu ágætu vína sem þar eru framleidd.
Nú eru vísbendingar um Beaujolais Nouveau sé víða að sækja í sig veðrið á ný, t.d. með aukinni sölu í Bretlandi. Breska ríkisútvarpið BBC fjallaði um það í vikunni og taldi að hugsanlega mætti rekja þetta annars vegar til 80s nostalgíu og hins vegar batnandi Beaujolais-vína í kjölfar heitari sumra.