Allt frá því að Cloudy Bay var stofnað í Wairau-dalnum í Marlborough á Nýja-Sjálandi árið 1985 hefur Cloudy Bay verið eitt fremsta vínhús landsins og er í hugum margra eitt helsta tákn nýsjálenskra gæðavína. Þrátt fyrir að flestir tengi Marlborough við þrúguna Sauvignon Blanc standa Chardonnay-vínin þeim hins vegar jafnfætis og stundum vel það.
2012 árgangurinn af Chardonnay frá Cloudy Bay er mikið vín, eikin er áberandi í nefinu, sviðin eik, reykur, hvnetur og eldspýtur, þungur og mikill ávöxtur, sítrusinn er ríkjandi, sítróna og greip, en einnig sæt melóna. Mjög þykkt og feitt, smjörkennt með ferskri sýru, sem sker í gegn. Virkilega flott vín. Má vel geyma.
4.699 krónur. Frábær kaup.