Campo Viejo Reserva 2009

Reserva-vínið frá Campo Viejo er látið liggja í 18 mánuði á frönskum og amerískum eikartunnum og síðan geymt í 18 mánuði til viðbótar á flösku áður en það fer á markað. ´

Sætar plómur og rauð ber í nefi, kirsuber, svolítið sultað, vanilla, mjólkurkaramella, kryddað, í munni reykur, eikað, þurrt, ágætlega þykkt. Klassískt Rioja. Með rauðu kjöti.

2.499 krónur. Góð kaup.

Deila.