Monte Ceriani Soave frá Tenuta Sant Antonio er Vecchie Vigne eða gert úr þrúgum af gömlum vínvið. Frakkar kalla þetta Vieilles Vignes og á ensku má stundum sjá Old Vines á flöskumiðunum. Eftir því sem vínviðurinn eldist gefur hver runni af sér færri ber en þau eru á móti bragðmeiri.
Vínið er míneralískt, hnetukennt,þarna er möndlumassn líka vottur af sítrusberki. Mjög þurrt, langt, vel balanserað. Hvítvín fyrir humar.
2.999 krónur. Mjög góð kaup.