Yellow Tail Pink Moscato

Pink Moscato er ein af nýjungunum frá Yellow Tail, léttfreyðandi rósavín með smá sætu, framleitt úr Muscat-þrúgunni. Þetta er óneitanlega svolítið öðruvísi vín, að mörgu leyti minnir það meira á svalandi, freyðandi ávaxtadrykk en vín. Angan af sætum jarðarberjum og hindberjum og berin halda áfram alla leið í bragðinu. Þetta er vín sem þarf að bera fram vel kælt og er þá svalandi og ágætlega þægilegt. Þetta er ekki matarvín, meira sumardrykkur eða partýdrykkur.

1.481 króna.

Deila.