Nýtt kokkalandslið kynnt

Kokkalandsliðið hefur hafið undirbúning fyrir Ólympíuleika í matreiðslu sem verða haldnir í

október 2016 í Erfurt Þýskalandi. Þá hefur liðið verið endurskipað með nýjum liðsmönnum

sem bætast í þann góðan hóp sem fyrir er. Kokkalandsliðið náði besta árangri liðsins í

sögunni á liðnu ári með 5.sæti á Heimsmeistaramóti í matreiðslu og vann á sama móti til

tvennra gullverðlauna.

Æfingar eru hafnar og standa yfir fram að keppni á Ólympíuleikum, liðmenn æfa og funda

stíft til að fylgja eftir góðum árangri í samræmi við háleit markmið.

Markmið Kokkalandsliðsins eru meðal annars að efla áhuga á matargerð og fagmennsku í

gerð matar á Íslandi, vekja áhuga ungs fólks á matargerð og keppa stolt fyrir hönd

þjóðarinnar með háleit markmið.

Klúbbur matreiðslumeistara vinnur að eflingu íslenskrar matreiðslu og matarmenningar með

rekstri Kokkalandsliðsins og annara verkefna í keppnismatreiðslu.

Á myndinni eru talið frá vinstri:

Steinn Óskar Sigurðsson Vodafone,Jóhannes Steinn Jóhannesson Slippbarinn, Guðmundur Björnsson Vox,Axel Clausen Fiskmarkaðnum,Ylfa Helgadóttir Kopar,Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarinn, Hrafnkell Sigríðarson Silfra Ion Hótel, Garðar K Garðarsson Strikinu,Axel Þorsteinsson Apótek, Hafsteinn Ólafsson Apótek,Gísli Matthías Auðunsson Slippnum/Matur og Drykkur,Atli Þór Erlendsson Grillinu, Ari Þór Gunnarsson Fiskfélaginu og Þráinn Freyr Vigfússon Lava Bláa Lóninu. Á myndina vantar Mariu Shramko.

Deila.