Pasqua Nero d’Avola Shiraz 2012

Pasqua er norður-ítalskur vínframleiðandi sem fyrst og fremst framleiðir vín frá Veneto. Á undanförnum árum hefur hann hins vegar einnig gert nokkur suður-ítölsk vín, t.d. þetta sikileyska, lífrænt ræktaða vín úr þrúgunum Nero d’Avola og Shiraz.

Í nefi plómuávöxtur, dökk ber, örlítið kryddað, milt og mjúkt í munni, ávöxturinn kryddaður og heitur.

1.990 krónur.

Deila.