Domaine Riché Chateauneuf-du-Pape 2012

Domaine Riché er lítið fjölskylduvínhús í þorpinu Chateauneuf-du-Pape í Rhone-dalnum. Vínin þaðan eru meðal þeirra Rhone-vína sem að fríhöfnin í Leifsstöð hefur nýlega bætt við í úrvalið hjá sér.

Þetta er klassískt Chateauneuf, ungt en mjúkt og þykkt og algjörlega tilbúið. Þykk og heit angan, töluvert krydduð, dökk kirsuber, kryddjurtir, piprað, járn,  mjög mjúkt í munni, ristaðar kaffibaunir,

4.799 krónur í fríhöfninni.

Deila.