Vinsobres er eitt af þeim þorpum á Cotes-du-Rhone-svæðinu í Suður-Frakklandi sem að stendur upp úr hvað gæði varðar og fá vínin því að bera sitt eigið þorpsnafn. Vinsobres hefur verið sjálfstætt AOC-svæði eða „appelation“ frá 2006 og er skilgrent sem Rhone Cru.
Þetta vín frá Domaine Jaume er auðkennt sem Altitude 420, sem að vísar til þess að ekran sem þrúgurnar eru ræktaðar á er í 420 metra hæð yfir sjávarmáli. Litur vínsins er út í fjólublátt, dökk ber, sólber, kirsuber, bláber, fjólur, jörð, míneralískt. Það hefur góðan kraft, staðföst tannín og flottan ferskleika sem að Syrah-þrúgan veitir. Virkilega gott Rhone-vín, tilvalið með lambi og kryddjurtum. Ekki bera fram of heitt, svona vín njóta sín best við um 18 gráður.
3.990 krónur. Mjög góð kaup.