Blue Fish Original Riesling 2014

blue fishBlue Fish eru vín frá Pfalz í Þýskalandi og framsetningin er greinilega ekki stíluð inn á þýska markaðinn.Enda er hér á ferðinni vín frá vínsamlaginu Die Weinmacher í Niederkirchen sem stílað hefur verið inn á Bandaríkjamarkað. Skærblá flaska, skærgult letur og enskt heiti. Það fyrsta sem að manni dettur í hug, svona í ljósi reynslunnar, sé að þarna sé ansi sætt og ótýpískt vín á ferð. Það er hins vegar ekki svo. Þetta er ágætlega þurrt og prýðilegt þýskt hvítvín. Mild blómaangan, létt ferskja og vottur af hnetu. Milt og mjúkt í munni. Ekki það sem maður á von á.

70%

1.860 krónur. Mjög góð kaup á þessu verði og fær hálfa auka stjörnu fyrir hlutfall verðs og gæða.

  • 7
Deila.