Brio de Cantenac 2012

BrioBrio er „annað“ vín Chateau Cantenac Brown, sem er eitt af Grand Cru-húsunum í Margaux, Það hefur alltaf verið hægt að stóla á Brio-inn undanfarin ár, þetta eru frábær kaup þegar Bordeaux-vín eru annars vegar, slagar hátt upp í stóru vínin (sérstaklega fyrstu 5-8 átta árin á flösku) en kostar bara brot af verði þeirra.

2012 var ekki með auðveldustu árunum í Bordeaux og vínhúsin þurftu að leggja mikið á sig til að ná vínum af góðum gæðum. Eitt af því „góða“ við slík ár er að þá fer yfirleitt meira af stóra víninu í „annað“ vínið, í þessu tilviki Brio.

Þetta er klassískur og fínn Bordeaux með dökkum sólberjaávexti, plómum, nokkur blómaangan, krydd og reykur úr eikinni. Þétt og fínt, enn nokkuð tanniskt, umhellið endilega svona einni klukkustund áður en vínið er borið fram. Vínið mun endurgjalda það.

90%

5.499 krónur. Hörkugóð kaup. Vín fyrir villibráðina rétt eins og öndina og nautasteikina.

  • 9
Deila.