Vínhúsið Willm er á vínleiðinni eða Route du vin á milli Strassborgar og Colmar í Alsace í Frakklandi, nánar tiltekið í smábænum Barr. Willm-fjölskyldan, sem þá rak veitingahús í Barr, stofnaði víngerðina 1896 og náði fljótt undraverðum árangri í útflutningi.
Gewurztraminer er ein af eðalþrúgum Alsace-héraðsins og eins og nafnið gefur til kynna á hún það til að vera arómatísk og krydduð. Í nefinu sæt og krydduð angan af blóðappelsínum og greipávöxtum, rósum og reykelsi. Þykkt og nokkuð feitt, með sætum, krydduðum ávexti, þurrt með góðri .lifandi sýru.
80%
2.699 krónur. Mjög góð kaup. Afbragðsvín með t.d. reyktum lax, austurlenskum mat og fleiru.
-
8