Nederburg er eitt hinum sögufrægu vínhúsum Suður-Afríku og var upphaflega stofnað árið 1791. Nederburg-býlið, sem er sannkallað Chateau, er enn á sínum stað í Paarl skammt frá Höfðaborg og vínin frá Nederburg eru með þeim vinsælli frá Suður-Afríku.Þetta hvítvín úr Winemaster’s Reserve-línunni, sem er vinsælasta lína framleiðandans alþjóðlega. Vínið er mjög fölt og ljóst á lit, í nefi töluverður sítrus, límóna, ferskjur og sætar melónur, ávaxtamikið, ungt, ágætlega þykkt og mjög ferskt.
70%
1.999 krónur. Ungt og ferskt vín, fínt sem fordrykkur eða með t.d. bleikju.
-
7