Place in the Sun er eins og heitið gefur óneitanlega til kynna vín af suðrænum og sólríkum slóðum, nánar tiltekið Suður-Afríku og þar auki auðmerkt sem „fairtrade“. Þegar rýnt er í flöskumiðann kemur í ljós að þetta er vín frá einu af hinum rótgrónu vínhúsum Stellenbosch eða Zonnenbloem.
Fölur litur og ljós. Angan af sætum greipávexti, brenninetlum og hitabeltisávexti, þykkur nokkuð sætur og beiskur ávöxtur í munni.
60%
1.799 krónur.
-
6