Muga hefur í gegnum árin verið eitt af allra bestu vínhúsum Rioja, að mörgu leyti skólabókardæmi um hvernig vín þessa héraðs eiga að vera. Stíllinn er klassískur Rioja-stíll, sem hefur engu að síður þróast með nútímalegri áherslum í héraðinu.
2012 er klassískur Muga, Dökkur kirsuberjaávöxtur í bland við sólber, kryddað, töluvert dökkristað kaffi, vanilla. Flott og vel strúktúrerað, kröftugt, öflug en mjúk tannín, langt. Kjötvín.
90%
3.990 krónur. Frábær kaup. Vín fyrir grillað rib-eye eða T-bone.
-
9