Fleur du Cap Chardonnay 2014

IMG_2284Fleur du Cap er eitt af vínhúsunum sem tengjast Bergkelder, einhverri merkilegustu stofnun suður-afríska víniðnaðarins. Vínhús og vínkjallari sem byggður var við rætur fjallsins Papegaaiberg skammt frá Stellenbosch. Kjallarar Bergkelder teygja sig inn í fjaliið og eru vinsæll áningarstaður ferðamanna.

Bergkelder var opnaður árið 1967 og gegndi mikilvægu hlutverki í nútímavæðingu suður-afrískrar vínframleiðslu á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Mörg af þekktustu vínhúsum Suður-Afríku tengdust þá Bergkelder en nú eru vínin frá Fleur du Cap helsta flaggskip þeirra.

Þetta er suðrænt og snoturt hvítvín, fallega gult á lit, suðrænir hitabeltisávextir ríkjandi í nefi, þroskaður ananas, mangó og greipávöxtur. Mjúkt og þykkt í munni, sætur ávöxtur og ágætur ferskleiki.

70%

1.999 krónur. Mjög góð kaup. Fínt með grilluðum laxi eða kjúkling.

  • 7
Deila.