Chardonnay er ekki þrúga sem að maður tengir yfirleitt við Loire-dalinn í Frakklandi sem er jú hvað þekktastur fyrir að vera eitt af meginræktunarsvæðum Sauvignon Blanc. En engu að síður er hana að finna þar eins og víðast hvar annars staðar eins og þetta vín frá Domaine la Moriniére sannar.
Það er fölgult á lit, gul epli og græn í nefi, hvít blóm og smá sítrus, þægilega ferskt og fínt í munni.
80%
1.999 krónur. Frábær kaup á þessu verði, snotur, franskur Chardonnay. Hálf auka stjarna fyri hlutfall verðs og gæða.
-
8