Campo Viejo Reserva 2011

img_3403Campo Viejo er eitt af stærstu vínhúsum Rioja og var lengi í eigu Domecq-fjölskyldunnar. Vínin eru yfirleitt nokkuð klassísk og ágætlega gerð.

Rauður ávöxtur, kaffi og krydd, vottur af kanilstöng og lakkrís, svolítið hart og tannískt í fyrstu en mýkist hratt ef það fær að anda í smá stund.

 

70%

2.399 krónur. Góð kaup.

  • 7
Deila.