Trapiche Gran Medalla Malbec 2012

Trapiche er stærsta og eitt elsta vínhús Argentínu og hefur verið leiðandi á mörgum sviðum þau 130 ár sem það hefur starfað og að mörgu leyti dregið vagninn ásamt hinum risanum, Catena-Zapata, í að koma argentínskum vínum á kortið alþjóðlega á síðustu árum. Eins og gefur að skilja er Malbec-þrúgan áberandi í úrvalinu hjá Trapiche og Gran Medalla er eitt af toppvínunum, þrúgurnar koma frá einni ekru af svæðinu Uco, sunnarlega í Mendoza, sem er með bestu ræktunarsvæðunum.

Dökkt og þykkt, í nefi djúp og þétt angan af þroskuðum, sætum, svörtum ávexti, plómur og bláber, en einnig fjólur, kaffi og súkkulaði, reykur, töluverð eik, vínið er mikið um sig,kröftugt, þykkt og feitt, en þó með góðum ferskleika, mjúk tannín. Afbragðsgott.

Við heimsóttum Trapiche í fyrra og hér má lesa aðeins meira um vínhúsið. 

90%

3.999 krónur. Frábær kaup. Vín fyrir bestu nautasteikurnar.

  • 9
Deila.