Ekrurnar sem að Aurelio Montes hóf að rækta á Apalta-hæðinni í Colchagua-dalnum halda stöðugt áfram að gefa frá sér ótrúlega góð vín, sem virðast sum hver bara verða betri og betri. Carmenere-þrúgan er auðvitað orðin eins konar flaggskipsþrúga Chile, gömul Bordeaux-þrúga sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga í Chile þar sem áratugum saman var talið að hún væri í raun Merlot. Hérna er hún blönduð annarri Bordeaux-þrúgu, Cabernet Sauvignon, en er þó alveg ríkjandi í blöndunni.
Dökkt og mjúkt með feitum, þroskuðum og sætum dökkrauðum ávexti sem rennur saman við ameríska eikina sem vínið hefur þroskast í og gefur sæta vanillu og ágengan ilm af sedrusvið, eða vindlakassa. Þykkt og afskaplega mjúkt. Hrikalega flott vín fyrir peninginn.
1.999 krónur. Frábær kaup. Hálf aukastjarna fyrir stórkostlegt hlutfall verðs og gæða.
-
9