Die Bergkelder hafði mikil áhrif á víngerðina í Suður-Afríku þegar að hann opnaði fyrir um hálfri öld síðan. Hugmyndin að baki þessum stóra og mikla vínkjallara sem sprengdur var inn í fjallið til að mynda aðstæður þar sem að hitastigið helst svalt og jafnt yfir árið þó svo að utandyra ráði hið sjóðheita afríska loftslag ríkjum. Bergkelder er enn í dag eins konar þungamiðja í víngerð landsins og fjölmörg toppvínhús sem tengjast honum, þar á meðal Fleur du Cap.
2016 árgangurinn er nú kominn á markað hér af Chardonnay-víninu, fallega ljósgult á lit, mikill suðrænn ávöxtur í nefi, sæt límóna og límónubörkur, þroskuð melóna og ananas, örlítil eik, í munni ágætlega ferskt með sætum og fínum ávexti.
1.999 krónur. Frábær kaup. Hálf auka stjarna fyrir frábært hlutfall verðs og gæða.
-
8