Hafsteinn Ólafsson matreiðslumaður á Sumac Grill + Drinks stóð uppi sem sigurvegari í keppninni Kokkur ársins 2017 sem fram fór í Hörpu á laugardag.Garðar Kári Garðarsson á Deplum Farm og Strikinu var í öðru sæti Víðir Erlingsson í Bláa lóninu í þriðja sæti.
Keppnin fór fram fyrir fullum sal í Hörpu þar sem fjöldi gesta hafa í allan dag fylgst með keppninni þar sem kokkarnir elduðu keppnismáltíðina í IKEA eldhúsum með hráefni frá Nettó. Lokasprettinn fór fram samhliða keppninni veisla fyrir gesti sem tryggðu sér miða á Kokkalandsliðskvöldverð og skemmtun. Keppendur háðu harða baráttu um titilinn eftirsóttta og naumt var á munum á milli efstu manna. Um val sigurvegarans sá fjölskipuð 11 manna dómnefnd. Yfirdómari var Krister Dahl frá Svíþjóð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar krýndi Kokk ársins í lok kvölds.
Krister Dahl yfirdómari sem er margverðlaunaður í keppnismatreiðslu og stýrir eldhúsum Gothia Towers í Gautaborg þ.m.t. 1 stjörnu Michelin veitingahúsinu Upper House hafði þetta um keppnina að segja „Það er greinilegt að keppendur koma vel undirbúnir til leiks og samkeppnin er hörð, ég verð að hrósa þessum ungu íslensku kokkum fyrir þeirra framlag og er sérstaklega hrifinn af sigurvegaranum … sem kom og heillaði dómnefndina með sínum flotta mat og faglegu vinnubrögðum. Ísland er svo sannarlega komið á kortið sem hágæða matarland og íslenskir kokkar standa sig afar vel í alþjóðlegum samanburði t.d. í alþjóðlegum matreiðslukeppnum.“