Gerard Bertrand hefur fært mörgum nýja sýn á Languedoc-vínin og hefur sömuleiðis verið framarlega í framleiðslu á lífrænt ræktuðum og lífefldum (biodynamic) vínum. Kosmos kom hingað í fyrsta skipti skipti á síðast ári, vín sem er jafnt algjörlega í anda Bertrands sem ansi frábrugðið flestum þeim vínum sem við höfum kynnst frá honum til þessa.
Vínið er flókin þrúgublanda, þarna eru heilar sjö þrúgur – Syrah, Malbec, Mourvédre, Cabernet Sauvignon, Merlot, Grenache, Marselan – og það er flokkað í kategóríunni Vin de France. Það er nýr flokkur sem varð til þegar að franska vínlöggjöfin var endurskoðuð fyrir nokkrum árum með það að markmiði að auðvelda frönskum vínframleiðendum að keppa alþjóðlega. Vin de France kemur í stað gömlu skilgreiningarinnar Vin de Table sem var m.a. þeim annmörkum háð að ekki mætti tilgreina hvaða þrúgur væru notaðar eða árgangsmerkja. Með Vin de France flokknum eiga franskir víngerðarmenn að geta keppt við Nýja heiminn á sömu forsendum og víngerðarmenn þar búa við.
Vínið er dimmrautt út í fjólublátt, bláberjasafi og þurrkuð ber, mildar rúsínur, balsamik og möndlukaramellur, feitt og þykkt með silkimjúkum tannínum en lík flottum ferskleika með góðri sýru.
3.399 krónur. Frábær kaup. Með villibráð, gæs og villiönd.
-
8