Nederburg The Winemasters Cabernet Sauvignon 2016

Nederburg er eitt af klassísku vínhúsunum í Suður-Afríku sem á sögu er teygir sig allt aftur að átjándu öld. Í dag er þetta stórt og mikið vínhús sem og er enn að mörgu leyti eitt af helstu táknum víngerðar landsins. The Winemasters er vín gert úr þrúgum af Western Cape-svæðinu, yfirbragðið er dökkt, sætur bláberjasafi, sólber og rabarbari í bland við töluverðan sætan reyk, eikin gefur milda og sæta vanillu, áferðin í munni er mjúk og vínið hefur fína sýru og ferskleika.

80%

2.098 krónur. Frábær kaup. Kröftugt og fint Cabernet frá Suður-Afríku.

  • 8
Deila.