Baron de Ley Gran Reserva 2012

Baron de Ley er eitt af yngri vínhúsum Rioja, “einungis” rétt um þrjátíu ára gamalt. Víngerðin er hins vegar í gömlu munkaklaustri syðst í héraðinu og stíll vínanna er vel heppnuð blanda af hinu klassíska og hinu nútímalega.

2012 var sumar sem einkenndist af heitu veðri og miklum þurrkum í Rioja en í september kom loks smávægileg rigning sem tryggði að þrúgurnar næðu mjög góðum þroska. Vinið er enn nokkuð unglegt þó það sé kominn örlítill byrjandi þroski í lit, margslungið vín, í nefi þykkur, þroskaður, dökkur ávöxtur, reykur, vanilla, púðursykur, enn ferskt með kröftugum, mjúkum tannínum.

90%

3.699 krónur. Frábær kaup. Með til dæmis nautalund Wellington.

  • 9
Deila.