Adorato er hvítvín úr smiðju Tommasi-fjölskyldunnar. Þrúgurnar, sem aðallega eru Garganega koma af heimaslóðum þeirra í Veneto-héraði á Norður-Ítalíu. Vínið hefur gullin lit, í nefi áberandi sætur perubrjóstsykur, þroskuð rauð epli, apríkósur, ávöxturinn nokkuð sætur og þykkur. Ágæt sýra og ferskleiki í munni.
70%
2.399 krónur. Mjög góð kaup. Berið fram vel kælt. Hentar til dæmis með asískum réttum, ekki síst með smá sætu.
-
7