Louis Latour Valmoissine Pinot Noir 2019

Louis Latour er gamalgróið négociant-hús í Búrgund og státar meðal annars af því ráða yfir stærsta safni Grand Cru-ekra allra húsa. Á síðustu árutugum hefur Louis Latour verið að færa út kvíarnar suður á bóginn meðal annars til Ardeche Í Rhone og Var í Provence-héraði og rækta þar vín úr Búrgundarþrúgunum tveimur. Í Ardeche er áhersla á hvítvín úr Chardonnay en í Var var fyrir rúmum þremur áratugum byrjað að gróðursetja Pinot Noir-vínvið í suðurhlíðum hæðar við Valmoissine-klaustrið. Þar nýtur vínviðurinn góðs af suðlægum hita og sól yfir daginn einnig því að ekran er í um 500 metra hæð yfir sjávarmáli sem tryggir svalara loft yfir nóttina.  Fagurrautt, litur nokkuð þéttur, í nefinu bjartur og þroskaður rauður berjaávöxtur, kirsuber, rifsber, ávöxturinn er mjúkur og þykkur og hefur mildan þægilegan beiskleika í munni.

80%

2.950 krónur. Frábær kaup. Suðrænn og mjúkur Pinot. Tilvalið sumarvín með t.d. grilluðum kjúklingi.

  • 8
Deila.