Campo Viejo Gran Reserva 2016

Bodegas Campo Viejo hefur löngum verið meðal helstu stoða vínframleiðslunnar í Rioja. V’inhúsið var stofnað árið 1959 og með því fyrsta sem stofnandinn José Ortiguela gerði var að setja vínið á flöskur í Bordeaux-stíl sem nú er orðin regla fremur en undantekning á svæðinu. Þetta er meðal stærstu vínhúsanna í héraðinu og fylgir hefðinni með vínum er byggja á langri geymslu, Crianza, Reserva og Gran Reserva.

Gran Reserva-vínið hefur beðið tvö ár á tunnu og þrjú á flösku. Árgangurinn sem nú er í boði er 2016 árgangurinn og þrúgublandann er Tempranillo, Mazuelo og Graciano. Það má sjá þroska í litnum og angan vínsins er kryudduð, rauð ber, kirsuber, kaffi, balsamviður og vanilla. Mjúkt, þykkt og þægilegt í munni. Þetta er tilvalið nautakjötsvín sem hentar ekki síður með t.d. önd.

90%

3.599 krónur sem er frábært verð fyrir klassískt og hnökralaust Gran Reserva-vín eins og þetta.

  • 9
Deila.