Þessi argentínski Merlot kemur frá héraðinu Patagoníu syðst í Argentínu en það svæði hefur til þessa ekki verið fyrirferðarmikið á íslenska vínmarkaðnum. Maður kemst ekki mikið sunnar en Patagóníu, næsta landsvæði fyrir sunnan er Suðurpóllinn.
Það eru miklar vonir bundnar við víngerð í Patagóníu og margir sem spá því að þetta verði eitthvert mest spennandi svæði framtíðarinnar í Suður-Ameríku fyrir þrúgur á borð við Merlot og Pinot Noir og ekki síður hvítvín Humberto Canale er meðal frumkvöðlanna í Patagóníu og nafn þessa víns er dregið af hinu spænska heiti vínhéraðsins Rio Negro. Þetta er þokkalega kröftugt vín, í nefi vanilla, ávaxtabaka, bláber, sýrumikið í munni, tannískt. dökkt, kryddað í lokin. Gefið því smá tíma til að anda.
1.999 krónur.