René Muré Riesling Signature 2006

Muré-fjölskyldan er með rótgrónustu vínræktendum í Alsace í Frakklandi, hefur ræktað vín þar frá því um miðja sautjándu öld. Hún hefur aðsetur sitt í Rouffach suður af Colmar og er aðalsmerki hennar stílhrein og vönduð vín þar sem sérkenni hverrar þrúgu njóta sín til fulls.

Þetta Riesling-vín frá Muré er ágætis dæmi um það, í nefi þurrkaður sítrus, sítrónubörkur, sítrónubaka, örlítil steinolía. Farið sýna byrjandi þroska. Þurrt og langt í munni. Vín sem hentar fiskréttum með mildu meðlæti og sósum þar sem fiskurinn sjálfur fær að njóta sín.

2.295 krónur.

 

 

Deila.