Paul Mas Chardonnay 2012

Þetta er suður-franskt hvítvín frá vínhúsinu Paul Mas og ágætis dæmi um þá hörðu samkeppni sem að Suður-Frakkland og þá ekki síst Languedoc er farið að veita vínum Nýja heimsins bæði í stíl og verði.

Fallegur, gullinn litur. Ávaxtamikið, ferskjur, apríkósur, sætur greip, smá þægileg beiskja í ávextinum, þarna er líka ópal-brjóstsykur, ef einhver man eftir honum, þessi bleiki. Bjart í munni með hreinum og ferskum ávexti í munni.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.