Vina Maipo Vitral Sauvignon Blanc 2012

Vitral er Reserva-lína frá chilenska vínhúsinu Vina Maipo, sem er í eigu vínrisans Concha y Toro.

Þetta er afbragðsgott hvítvín í sínum verðflokki, að minnsta kosti fyrir þá sem vilja mikinn hitabeltisávöxt í Nýja-heims Sauvignon-Blanc-vínin sín. Melóna, ferskjur, kívi, sítrus, ferskt og þægilega „hvasst“ í bland við sætan ávöxtinn. Safaríkt með góðri og ferskri sýru.

1.899 krónur. Frábær kaup.

Deila.