Tommasi Le Rosse Pinot Grigio 2012

Pinot Grigio hefur á skömmum tíma orðið að einhverri vinsælustu hvítvínsþrúgu heims og er það ekki síst að þakka vinsældum ítölsku vínanna sem framleidd eru úr henni, á Bandaríkjamarkaði.

Le Rosse er milt og þægilegt hvítvín, í nefi þroskuð gul epli, perur og apríkósur, blóm. Milt í munni, þurrt.

2.499 krónur. Góð kaup.

Deila.