Líkt og önnur Trio-vín frá Concha y Toro er þetta þrenna, í þetta skipti blanda úr þremur rauðum þrúgum, þetta árið þær Merlot, Carmenere og Syrah, ræktaðar í Rapel-dalnum í Chile.
Í nefi greni, lyng, krydd, viður, plómur og blóm, Ristað, þurr ávöxtur í munni, mjög kryddað. Þetta er ungt vín og það þarf tíma til að opna sig. Í byrjun var það hart, frekar lokað en fór smám saman að gefa meira af sér og loks blómstra. Mæli með umhellingu.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.