Vínið Marchese Antinori er nútímalegt Chianti Classico úr smiðju Antinori-fjölskyldunnar og hér hér áður fyrr Tenute Marchese Antinori. Þetta er blanda úr þrúgunun Sangiovese (90%) og Cabernet Sauvignon og þrúgurnar koma af bestu ekrum Antinori-fjölskyldunnar á Chianti Classico-svæðinu í Toskana, s.s. Tignanello, Badia a Passignano og Peppoli.
Mjög þroskuð kirsuber, plómur, púðursykur og vanilla, kaffi, feitt með góðri fersku sýru, tannískt, strúktúrerað, langt. Hrikalega flott matarvín, reynið með nautalund eða hreindýri.
3.499 krónur. Mjög góð kaup.