Chili con carne eða „chili með kjöti“ er kássa úr nautakjöti, chili, baunum og tómötum ásamt kryddum sem þróaðist fram hjá landnemum í suðvesturhluta Bandaríkjanna á nítjándu öld. Chili con carne er hin „opinberi réttur“ Texas-ríkis samkvæmt samþykkt ríkisþingsins frá 1977.
- 500 nautahakk
- 1 laukur
- 2 hvítlaluksrif
- 1-2 paprikur
- 1 tsk cumin
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk chiliduft
- 1 stór dós tómatapúrra
- 2 msk nautakraftur
- 2 msk chipotle-chilimauki
- 1 dós nýrnabaunir
- ferskur chili fyrir þá sem vilja hafa réttinn sterkan
- salt og pipar
Steikið nautahakkið,lauk og paprikur á pönnu. Bætið við öðrum hráefnum og kryddum en geymið baunirnar. Leyfið þessu að krauma í a.m.k. 30. Hellið þá baununum út í og látið malla aðeins áfram. Berið fram með t.d. hrísgrjónum, heimatilbúnu guacamole, sýrðum rjóma og salati.