J.V. Fleury GSM 2011

Þegar vín eru annars vegar stendur skammstöfunin yfirleitt GSM fyrir þrúgurnar Grenache, Syrah og Mourvédre. Þær eru allar mikið notaðar í suðurhluta Frakklands og ekkert nýtt að þeim sé blandað saman. Það voru hins vegar Ástralir sem tóku upp á því að markaðssetja þennan þrúgukokteil sem GSM og fleiri eru nú farnir að taka þann sið upp. Það á til dæmis við um franska vínhúsið Vidal-Fleury sem hefur leikið sér að skammstöfuninni og framleiðir þrjú GSM-vín, rautt, hvítt og rósa.

Þetta rauðvín frá Vidal-Fleury er mjög ólíkt hinum áströlsku GSM-vínum og er eiginlega bara hörku Rhone-vín. Angan vínsins er krydduð, þarna er rabarbarasulta, plóma og dökk ber, krækiber,  lakkrís og smá reykur. Hefur góða og þétta uppbyggingu, þurrt, mjúk tannín.

2.199 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.