Hvar nema frá Rioja og nokkrum öðrum spænskum svæðum fær maður reglulega næstum því áratugargömul vín sem hafa náð fullkomnum þroska án þess að vínið kosti neitt afskaplega mikið og án þess að maður þurfi að geyma það sjálfur?
Þessi Gran Reserva frá Montecillo hefur fallegan dökkan lit, dökkrauður en jafnframt farin að færast út í brúna, þroskaðri tóna. Töluverður viður í nefi, eik, sem ágerist eftir því sem að vínið fær að anda. Kaffi og jörð, mjög þroskaðar plómur, kandís. Mjúkt með þroskuðum tannínum, fágað. Þetta er vín á toppnum, ekki geyma. Notið með flottri nautasteik eða þroskuðum osti, t.d. Manchego.
3.599 krónur.